Stærstu fjallgarða heimsins eru fellingafjöll og hafa þau verið að myndast í gegnum alla jarðsöguna. Víða um jörðina er hægt að finna leifar gamalla fellingafjalla sem mynduðust á forkambríum og fornlífsöld en vegna hreyfingar jarðskorpuflekanna eru þessir fjallgarðar á allt öðrum stöðum en þar sem þeir mynduðust. Útræn öfl eins og jöklar, vindur og vatn hafa eytt þessum fjallgörðum og skilið eftir sig forngrýtisskildi en það er mjög stór og forn berggrunnur í jarðskorpunni. Myndun þessara fjallgarða verður þegar tveir jarðskorpuflekar ýtast saman og jarðlögin krumpast upp.